Endurgreiðsluskilmálar

Skilaréttur og endurgreiðslur
Litli Prins selur eingöngu stafrænar vörur (rafrænar uppskriftir) og aðgang að viðburðum.

Rafrænar uppskriftir 
Samkvæmt ESB-reglum (sjá tilskipun 2011/83/EU) fellur réttur til að ganga til baka frá kaupum niður þegar stafrænt efni er afhent, og kaupandi hefur samþykkt að afturköllunarréttur falli niður við afhendingu. Með kaupum á rafrænum uppskriftum staðfestir kaupandi að hann samþykki að efnið sé afhent strax og að afturköllunarréttur falli þar með niður.

Aðgangur að viðburðum 
Skilaréttur á ekki við um miða og aðgang að viðburðum á tilteknum degi eða tímabili, sbr. undanþágu í ESB-reglum. Sjá nánari upplýsingar um afbókunar- og endurgreiðslurétt fyrir viðkomandi viðburð í hvert sinn.

Mistök í pöntun eða greiðslu 
Ef mistök verða í pöntunar- eða greiðsluferlinu, vinsamlegast hafðu samband við okkur eins fljótt og auðið er og við munum gera okkar besta til að hjálpa.

Sendu póst á: steinunn@litliprins.is