BAX heilgalli
BAX heilgalli
BAX heilgalli
BAX heilgalli
  • Load image into Gallery viewer, BAX heilgalli
  • Load image into Gallery viewer, BAX heilgalli
  • Load image into Gallery viewer, BAX heilgalli
  • Load image into Gallery viewer, BAX heilgalli

BAX heilgalli

Verð
1.300 kr
Útsöluverð
1.300 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessi galli er með sama fallega mynstrinu og aðrar uppskriftir í BAX-línunni.

Fallegur og góður galli sem hentar í vagninn, gönguferðir, leikskólann og allt annað sem litlir krakkar gera þegar þau eru að uppgötva heiminn.

Gallinn er prjónaður ofanfrá og niður með útaukningum í mynstrinu á berusykki, fram og til baka þar til kemur að klofstykki en þá er tengt í hring. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og ermar einnig. Í lokin eru teknar upp lykkjur í kantinum til að gera tölulista og hann svo festur niður að neðanverðu.

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef þú notar aðra tegund þá gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þín prjónfesta er önnur.

*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Bax línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum BAX***

STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 1-2 ára / 2-3 ára / 3-4 ára

UMMÁL BOLS
47 / 50 / 54 / 56 / 58 / 61 / 63 / 65 cm 

GARN
Woolly frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 200, 200, 250, 250, 300, 300, 350 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Skæri, nál
6-8 tölur