BAX opin barnapeysa
BAX opin barnapeysa
BAX opin barnapeysa
BAX opin barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, BAX opin barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, BAX opin barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, BAX opin barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, BAX opin barnapeysa

BAX opin barnapeysa

Verð
1.050 kr
Útsöluverð
1.050 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessi peysa er með sama fallega mynstrinu og aðrar uppskriftir í BAX-línunni.

Hún er sérlega sparileg og sæt, fljótprjónuð og einföld.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningum í mynstrinu á berustykki, fram og til baka. Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi. Í lokin eru teknar upp lykkjur í kantinum til að gera tölulista.

*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Bax línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum BAX***

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef prjónfesta þín er önnur gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þú notar aðra garntegund.

STÆRÐIR
6-9 mán, 9-12 mán, 1 árs, 2 ára / 3, 4, 5, 6, 7 ára

UMMÁL BOLS
55, 57, 57, 59 / 62, 65, 65, 68, 70 cm

GARN
Woolly frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 150, 200, 250 / 250, 300, 300, 350, 400 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Skæri, nál
6-8 tölur