Berg barnagalli
Berg barnagalli
Berg barnagalli
  • Load image into Gallery viewer, Berg barnagalli
  • Load image into Gallery viewer, Berg barnagalli
  • Load image into Gallery viewer, Berg barnagalli

Berg barnagalli

Verð
1.300 kr
Útsöluverð
1.300 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Fallegasti gallinn ❤

Gallinn er prjónaður fram og til baka, ofan frá og niður með útaukningum í laska. Þegar kemur að klofstykki er tengt í hring og gallinn prjónaður í hring þar til komið er að skálmum, sem prjónaðar eru hvor í sínu lagi.
Mynstrið er prjónað niður allan bolinn bæði á fram- og bakstykkjum auk skálma en ermarnar eru sléttar.
Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi. Tölulistar eru prjónaðir eftir á.

*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Berg línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum BERG***

STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára

UMMÁL BOLS
48 / 53 / 54 / 57 / 59 / 61 / 64 / 68 cm

GARN
Woolly frá Jord Clothing (50 gr= 125 mtr. Woolly fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 200, 200, 250, 250, 300, 300, 350 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar 40 eða 60 cm, # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm í sléttu prjóni (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
6-8 tölur

Hjálparband eða næla
Skæri, nál