Þessi húfa er með sama fallega mynstrinu og aðrar uppskriftir í Berg-línunni og passar sérlega vel með þeim öllum.
Húfan er prjónuð í hring neðan frá og upp. Eyrnaskjól og bönd eru prjónuð síðast.
*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Berg línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum BERG***
STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán / 6-12 mán / 1-2 ára / 3-4 ára / 5-6 ára
UMMÁL
35 / 37 / 38 / 40 / 42 / 45 cm
GARN
Woolly frá Jord Clothing (50 gr = 125 metrar) eða það garn sem passar prjónafestunni.
50, 50, 50, 100, 100, 100 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Skæri, nál