Buxurnar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður með stuttum umferðir í stroffinu til að gera pláss fyrir bleiuna. Mynstur er prjónað eftir allri flíkinni. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi. Í mittinu eru gerð göt í strenginn til að þræða snúru í ef vill.
*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Berg línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum BERG***
STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán
UMMÁL
45 / 49 / 52 / 57 cm
GARN
Sandnes Lanett eða það garn sem passar prjónafestunni.
100 / 100 / 150 / 150 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 2,5 og 3,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 2,5 og 3,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
27 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða næla
Skæri, nál