Þessi peysa er með sama fallega fléttumynstrinu og aðrar uppskriftir í Blika línunni. Hún er einföld og stílhrein og passar því vel með hverju sem er.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og tilbaka. Munstur er á boðungum og speglast það milli hægri og vinstri hliða. Tölulisti er prjónaður í lokin.
*** Ef 2 eða fleiri uppskriftir úr Blika línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum BLIKA***
STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
9-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára
UMMÁL BOLS
45 / 47 / 50 cm
58 / 61 / 63 / 65 / 68 cm
GARN
Woolly light frá Jord Clothing - 100 / 100 / 150 gr
Woolly frá Jord Clothing - 250, 300, 350, 350, 350 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, lengd valfrjáls #2,5 og 3,0 / Sokkaprjónar #2,5 og 3,0
Hringprjónar, lengd valfrjáls #3,5 og 4,0 / Sokkaprjónar #3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
28 L = 10 cm
22 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
6-8 tölur
Hjálparband eða næla
Skæri, nál