Flóki bleiubuxur
Flóki bleiubuxur
Flóki bleiubuxur
Flóki bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki bleiubuxur

Flóki bleiubuxur

Verð
790 kr
Útsöluverð
790 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessar buxur eru með einföldu og fallegu mynstri yfir mittið, eins og aðrar uppskriftir í Flóka-línunni og passa sérlega vel með þeim öllum.
Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með mynstri efst við mitti og stuttum umferðum á baki til að pláss sé fyrir bleiurassinn. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og að lokum er lykkjað saman í klofi.

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef prjónfesta þín er önnur gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þú notar aðra garntegund.

*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Flóka línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum FLÓKI***

STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 12-18 mán

UMMÁL
35 / 38 / 41 / 44 / 49 / 52 cm

GARN
Woolly frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
50, 100, 100, 100, 100, 100 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Hjálparband eða næla
Skæri, nál