Flóki buxur
Flóki buxur
Flóki buxur
Flóki buxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki buxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki buxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki buxur
  • Load image into Gallery viewer, Flóki buxur

Flóki buxur

Verð
1.050 kr
Útsöluverð
1.050 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessar buxur eru með einföldu og fallegu mynstri yfir mittið, í stíl við samfelluna og húfuna.

Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með mynstri efst við mitti og stuttum umferðum á baki til að pláss sé fyrir bleiurassinn. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og að lokum er lykkjað saman í klofi.

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef prjónfesta þín er önnur gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þú notar aðra garntegund.

*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Flóka línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum FLÓKI***

STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 12-18 mán

UMMÁL
41 / 46 / 49 / 52 / 55 / 57 cm

GARN
Woolly frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 100, 100,  150, 150, 150 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða -nælu
Skæri, nál