Þessi húfa er með einföldu og fallegu mynstri í stíl við aðrar Flóka uppskriftir.
Húfan er prjónuð í hring neðan frá og upp. Eyrnaskjól og bönd eru prjónuð síðast.
STÆRÐIR
Nýburar / 1-3 mán / 3-6 mán / 6-12 mán / 1-2 ára / 3-4 ára / 5-6 ára
UMMÁL
33 / 35 / 38 / 38 / 41 / 43 / 46 cm
GARN
Fine Merino frá Gabo Wool (fæst hjá vetrargarn.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
50, 50, 50, 50, 100, 100, 100 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Skæri, nál


