Flóki samfella
Flóki samfella
Flóki samfella
Flóki samfella
  • Load image into Gallery viewer, Flóki samfella
  • Load image into Gallery viewer, Flóki samfella
  • Load image into Gallery viewer, Flóki samfella
  • Load image into Gallery viewer, Flóki samfella

Flóki samfella

Verð
1.050 kr
Útsöluverð
1.050 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessi samfella er með einföldu og fallegu mynstri yfir mittið, í stíl við buxurnar og húfuna.

Samfellan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningum á berustykki og opnu hálsmáli í baki. Styttri umferðir eru neðst á bakstykki svo pláss sé fyrir bleiurassinn. Þegar kemur að skálmaopi er stykkinu skipt og fram- og bakstykki prjónuð hvort í sínu lagi, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar ofan frá og að lokum eru teknar upp lykkjur við skálmaop að gera stroff og tölur festar á klofstykki.

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef prjónfesta þín er önnur gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þú notar aðra garntegund.

*** Ef 3 eða fleiri uppskriftir í Flóka línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum FLÓKI***

STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 12-18 mán

UMMÁL BOLS
45,5 / 47 / 49 / 53 / 54,5 / 58 cm

GARN
Woolly frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 150, 200,  200, 200, 200 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
Heklunál # 3,5

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða -nælu
4 tölur
Skæri, nál