Húfan er prjónuð í hring á sokkaprjóna eða hringprjón. Stroffið er prjónað tvöfalt fyrir auka hlýju á lítil eyru. Gert er ráð fyrir eyrnaskjólum í minnstu stærðina.
STÆRÐIR
6-12 mánaða / 1-3 ára / 4-6 ára
UMMÁL
32 / 36 / 38 cm
GARN
Fine merino frá Gabo Wool sem fæst hjá vetrargarn.is (50 g = 105 m)
50 g / 100 g / 100 g
Athugið að ef annað garn er valið gæti það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst
PRJÓNAR
Hring- og sokkaprjónar númer 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar númer 3,5 og 4,0 (má líka nota magic loop aðferðina, þá er gott að hafa 80 cm hringprjóna nr. 3,5 og 4,0)
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22L = 10 cm
ANNAÐ
Prjónamerki, hjálparband, skæri og nál
Hönnuður: Fanney Rún Ágústsdóttir
Dreifing og fjölföldun óheimil
Mars 2025