Þessi peysa er með sama einfalda og stílhreina mynstrinu og er í öðrum Hauks-uppskriftum. Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður, með útaukningum við laska. Mynstur er á framstykki en peysan slétt að öðru leiti. Rúllukraga má sleppa ef vill.
Haukur húfan passar að sjálfsögðu fullkomlega með þessari peysu.
*** Ef 2 eða fleiri uppskriftir í Haukur línunni eru keyptar saman reiknast 10% afsláttur við greiðslu með afsláttakóðanum HAUKUR*** Gildir ekki með öðrum tilboðum
Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef þú notar aðra tegund þá gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þín prjónfesta er önnur.
STÆRÐIR
6-9 mán / 9-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára
UMMÁL
52 / 55 / 57 / 60 / 62 / 65 / 67 / 71 cm
GARN
Woolly frá Jord Clothing eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 200, 200, 250, 250, 300, 300, 350 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Skæri, nál