Haustgola er með rúllukraga, sem þó má sleppa, víðum ermum og þröngu ermastroffi. Hún hentar sérlega vel yfir leggings eða sokkabuxurnar og flottir skór toppa svo dressið.
Peysan er prjónuð í hring, ofan frá og niður. Auðvelt er að stjórna síddinni á peysunni með því að fækka eða fjölga munsturumferðum, eða hafa stroffið örlítið styttra eða lengra en gefið er upp í uppskrift.
STÆRÐIR
6-9 mán, 1, 2, 3, 4, 5-6, 7-8, 9-10 ára
UMMÁL
57, 60, 62, 65, 66, 68, 72, 74 cm
SÍDD Á PEYSU FRÁ HANDVEGI
25, 28, 32, 38, 42, 45, 48, 50 cm
GARN
Woolly frá Jord Clothing eða það garn sem passar prjónafestunni.
200, 200, 250, 300, 300, 350, 400, 450 gr.
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn, 40 cm # 3,0 og 4,0
Hringprjónn, 60 cm # 4,0
Sokkaprjónar # 3,0 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Skæri, nál