Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka til að byrja með og svo er tengt í hring. Prjónað er slétt á réttunni og brugðið á röngunni. Fyrstu 6 og síðustu 6 lykkjurnar eru kantlykkjur sem mynda tölulista. Þær eru alltaf prjónaðar með stroffprjóni, 1 slétt og 1 brugðin. Við enda tölulistanna er gerður i-cord kantur sem gerir kantinn mjög fallegan.
STÆRÐIR
1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5ára / 6ára
UMMÁLBOLS
56 / 59 / 60 / 64 / 65 / 67 cm
GARN
Guéret frá Fonty (50g = 125m) Guéret færst hjá kyrrdknit.is
Litur 1: 100 g / 100 g / 100 g / 100 g / 100 g /100g Litur 2: 100 g / 100 g / 150 g / 150 g / 150 g /200g Athugið að ef annað garn er valið gæti það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst
PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm. Númer 4,0
(sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar númer 4,0
PRJÓNAFESTA 22L = 10 cm
ANNAÐ
Prjónamerki, hjálparband, skæri, nál og 3 tölur
Hönnuður: Fanney Rún Ágústsdóttir
Dreifing og fjölföldun bönnuð
Ágúst 2024