Hversdagskjóllinn
Hversdagskjóllinn
Hversdagskjóllinn
Hversdagskjóllinn
Hversdagskjóllinn
Hversdagskjóllinn
  • Load image into Gallery viewer, Hversdagskjóllinn
  • Load image into Gallery viewer, Hversdagskjóllinn
  • Load image into Gallery viewer, Hversdagskjóllinn
  • Load image into Gallery viewer, Hversdagskjóllinn
  • Load image into Gallery viewer, Hversdagskjóllinn
  • Load image into Gallery viewer, Hversdagskjóllinn

Hversdagskjóllinn

Verð
1.250 kr
Útsöluverð
1.250 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Einfaldur, stílhreinn og sígildur. Þessi kjóll passar allstaðar og með öllu. Þó hann heiti Hversdagskjóllinn hentar hann jafnvel hjá dagmömmunni og í leikskólanum, eða í brúðkaupum og stórafmælum.

Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður með útaukningum  á berustykki og opnu hálsmáli í baki. Icord kantur er í hálsmáli og efst á pilsi. Ermar eru prjónaðar ofan frá og eru í ¾ sídd.


STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 12-18 mán / 18-24 mán / 2-3 ára / 3-4 ára

UMMÁL BOLS (mælt fyrir ofan pils)
47 / 50 / 52 / 53 / 53 / 57 / 60 / 62  cm

SÍDD Á PILSI
21 / 23 / 25 / 27 / 29 / 32 / 36 / 38  cm 

HEILDARLENGD FRÁ UPPFITI AÐ AFFELLINGU
32 / 35 / 37 / 40 / 43 / 45 / 49 / 52  CM

GARN
Woolly Light frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 100, 100, 150, 150, 150, 200, 200, 250 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40-60 cm nr. 3,0
Sokkaprjónar nr. 2,5 og 3,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
28 L = 10 cm á prjóna # 3,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða -næla
Skæri, nál