MÓI Barnapeysa
MÓI Barnapeysa
MÓI Barnapeysa
MÓI Barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, MÓI Barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, MÓI Barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, MÓI Barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, MÓI Barnapeysa

MÓI Barnapeysa

Verð
1.050 kr
Útsöluverð
1.050 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Peysan er með "oversize" sniði þannig að hún er nokkuð víð. Uppgefið ummál sýnir stærð flíkurinnar.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður. Fyrst er bakstykki prjónað að handvegi, svo hvort axlarstykki fyrir sig áður en þau eru sameinuð í eitt framstykki og prjónuð þannig niður að handvegi. Þá eru stykki tvö tengd saman og peysan prjónuð í hring niður allan bolinn.
Ermalykkjur eru teknar upp við handveginn og ermin prjónuð í hring ofan frá og niður.

Í lokin eru teknar upp lykkjur meðfram hálsmáli og hálslíningin prjónuð.

STÆRÐIR
1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8-10, 11-13 ára

UMMÁL BOLS
62, 65, 69, 71, 73, 76, 80, 84, 91 cm

GARN
Lana Gatto Supersoft (50 gr = 125 mtr) eða annað sem passar prjónafestunni.
200, 250, 300, 300, 350, 350, 400, 400, 400,  gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar # 3,5 og 4,0 (lengd valfrjáls) (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Skæri, nál