Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum í laska. Að loknum útaukningum eru ermalykkjur geymdar á meðan bolurinn er prjónaður. Þær eru svo settar aftur á prjóninn og ermarnar prjónaðar hvor í sínu lagi.
Hálsmálið er hækkað með stuttum umferðum sem prjónaðar eru strax að loknu stroffi. Aðferðin er útskýrð vel í uppskriftinni.
Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum).
Í peysunni á myndinni var ég með hvíta litinn sem ríkjandi lit.
STÆRÐIR
6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8 ára
UMMÁL BOLS
54 / 60 / 60 / 65 / 65 / 71 / 71 / 76 / 76 cm eftir þvott og þurrk
GARN
Fine Merino frá Gabo Wool (50 gr= 105 mtr – Fæst hjá vetrargarn.is ) eða það garn sem passar prjónafestunni.
Litur A (hvítur á mynd): 100 / 150 / 200 / 200 / 200 / 250 / 250 / 300 / 300 gr.
Litur B (brúnn á mynd): 100 / 100 / 100 / 150 / 150 / 200 / 200 / 200 / 250 gr.
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI eftir þvott og þurrk
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða næla
Skæri, nál