Húfan er prjónuð í hring neðan frá og upp. Eyrnaskjól og bönd eru prjónuð síðast á minni stærðunum, en í stærri stærðunum er stroffið haft tvöfalt.
Ég mæli með að húfan sé öll prjónuð á prjóna nr. 3,5 til að hafa hana þétta og góða.
STÆRÐIR
6-12 mán / 1-2 ára / 3-4 ára / 5-6 ára
UMMÁL
35 / 39 / 43 / 47 cm
GARN
Lana Gatto Merinocot eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 100, 100, 100 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn, 40 cm # 3,5
Sokkaprjónar # 3,5
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
23 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Skæri, nál