Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum sem falla inn í mynstrið.
Mynstrið er prjónað á öllu berustykkinu en ermar og bolur eru slétt.
Neðst á bol eru gerðar stuttar umferðir á bakstykkinu og klauf er í sitt hvorri hliðinni í stroffinu.
Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi.
Uppgefin mál í uppskriftinni eru ummál flíkurinnar, taktu þá stærð sem er u.þ.b. 10-12 cm. víðara en brjóstmálið þitt.
STÆRÐIR
XXS – XS – S – M – L – XL – 2XL – 3XL
UMMÁL BOLS
XXS: 93 – XS: 98 – S: 101 – M: 109 – L: 115 – XL: 120 – 2XL: 128 – 3XL: 131 cm
GARN
Fog frá Gabo Wool (50 gr=125 mtr) sem fæst hja vetrargarn.is
300 – 300 – 350 – 400 – 450 – 450 – 500 - 500 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 4,5 og 5,0
Sokkaprjónar # 4,5 og 5,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
16 L og 25 umf = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Hjálparband eða nælur
Skæri, nál



