Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum sem falla inn í mynstrið. Hálslíning er tvöföld þó hægt sé að hafa hana einfalda ef þess er fremur óskað.
Mynstrið er prjónað á öllu berustykkinu en ermar og bolur eru slétt.
Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi.
STÆRÐIR
6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8 ára / 9-10 ára
UMMÁL BOLS
54 / 58 / 60 / 62 / 63 / 65 / 67 / 69 / 70 / 72 cm
GARN
Lana Gatto Supersoft (50 gr= 125 mtr). Fæst hjá garnoggjafir.is
200, 200, 200, 250, 250, 300, 300, 350, 350, 400 gr
Lana Gatto Merinocot hentar líka vel í þessa uppskrift
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Hjálparband eða nælur
Skæri, nál