Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
Óvænt heilgalli
  • Load image into Gallery viewer, Óvænt heilgalli

Verð
1.300 kr
Útsöluverð
1.300 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessi galli er með sama fallega mynstrinu og aðrar uppskriftir í Óvænt-línunni.

Fallegur og góður galli sem hentar í vagninn, gönguferðir, leikskólann og allt annað sem litlir krakkar gera þegar þau eru að uppgötva heiminn.

Gallinn er prjónaður ofanfrá og niður með útaukningum við laska. Berustykkið er mynstrað bæði á fram- og bakhlið og tengist mynstrið undir ermum.
Gallinn er prjónaður fram og til baka þar til kemur að klofstykki en þá er tengt í hring. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og ermar einnig. Tölulistar eru prjónaðir jafnóðum.

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef þú notar aðra tegund þá gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, og einnig ef þín prjónfesta er önnur.

STÆRÐIR

Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára

UMMÁL BOLS
48 / 51 / 55 / 58 /  60 / 64 / 64 / 65 cm

GARN
Woolly frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 200, 200, 250, 250, 300, 350, 350 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Skæri, nál
6-8 tölur