Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og tilbaka. Munstur er á bol en annars er peysan með sléttu prjóni. Tölulisti er prjónaður í lokin.
Viltu venjulegar buxur með peysunni?
Bylur buxurnar henta þá sérlega vel.
STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
UMMÁL
43, 45, 47, 50 cm
GARN
Woolly light frá Jord Clothing (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 100, 100, 100 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, lengd valfrjáls nr. 2,5 og 3,0
Sokkaprjónar nr. 2,5 og 3,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
28 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
5-8 tölur
Skæri, nál
Þessi peysa er hluti af uppskriftalínu sem varð til sem heimferðarsett fyrsta barnabarnsins míns, sem sónarinn hafði sagt að væri stúlka. Þegar barnið fæddist kom hins vegar í ljós að stúlkan var hinn myndarlegasti drengur, sem nokkrum dögum síðar fékk nafnið Matthías Haukur.