Óvænt - romper
Óvænt - romper
Óvænt - romper
Óvænt - romper
  • Load image into Gallery viewer, Óvænt - romper
  • Load image into Gallery viewer, Óvænt - romper
  • Load image into Gallery viewer, Óvænt - romper
  • Load image into Gallery viewer, Óvænt - romper

Óvænt - romper

Verð
790 kr
Útsöluverð
790 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Romperinn er prjónaður í hring, ofan frá og niður, með mynstri á framstykki.

Þegar kemur að skálmaopum er stykkinu skipti í fram- og bakstykki og eru þau prjónuð fram og til baka. Stykkin eru svo lykkjuð saman í klofinu og prjónuð brugðning við skálmaop. Að lokum eru axlaböndin prjónuð og tölur festar á.


STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán

UMMÁL
36, 40, 44, 48 cm

GARN
Woolly light (fæst hjá frostknit.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
50, 50, 100, 100 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, lengd valfrjáls # 2,5 og 3,0
Sokkaprjónar # 2,5 og 3,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
28 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
2 tölur
Skæri, nál

Þessi romper er hluti af uppskriftalínu sem varð til sem heimferðarsett fyrsta barnabarnsins míns, sem sónarinn hafði sagt að væri stúlka. Þegar barnið fæddist kom hins vegar í ljós að stúlkan var hinn myndarlegasti drengur, sem nokkrum dögum síðar fékk nafnið Matthías Haukur.