Sjöan - barnapeysa með hringberustykki

Sjöan - barnapeysa með hringberustykki

Verð
763 kr
Útsöluverð
763 kr
Verð
1,090 kr
Uppselt
Einingaverð
per 

Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður, með útaukningum í berustykki. Hálslíningin er tvöföld, en hægt er að hafa hana einfalda ef þess er óskað. Berustykkið er einlitt, en mynstur er prjónað á bol.
Ermalykkjurnar eru geymdar á meðan bolurinn er prjónaður og ermarnar síðan prjónaðar hvor í sínu lagi.

Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum).
Í peysunni á myndinni var ég með ljósa litinn sem ríkjandi lit.

STÆRÐIR
6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8-10 ára

UMMÁL
55 / 60 / 65 / 71 / 71 / 76 / 76 / 82 / 87 cm

GARN
Tillaga 1:
Fine Merino frá Gabo Wool (50 gr.= 105 mtr).

Litur A (aðallitur): 200, 200, 250, 250, 300, 300, 300, 350, 400 gr.
Litur B (mynsturlitur): 50, 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 150 gr.

Tillaga 2:
My Time Merino frá Gabo Wool (50 gr.= 230 mtr) prjónað tvöfalt

Litur A (aðallitur): 200, 200, 250, 250, 300, 300, 300, 350, 400 gr.
Litur B (mynsturlitur): 50, 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 150 gr.

Garnið frá Gabo Wool fæst hjá vetrargarn.is

PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0   //  Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki

Hjálparband eða nælur
Skæri, nál