Þessi kjóll er prjónaður ofanfrá og niður með opnu hálsmáli í baki.
Útaukningar í laska eru með gatamynstri að framan en ekki að aftan. Gatarönd er efst á pilsi en henni má sleppa ef ekki á að þræða borða í gegn.
STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán
UMMÁL
46, 51 cm
GARN
Sandnes Mandarin Petit
400, 450 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn, 40 cm # 2,5
Hringprjónn, 40cm og 60 cm # 3,0
Sokkaprjónar # 2,5 & 3,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
27 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Heklunál # 2,5
1-2 tölur
Skæri, nál