Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum í berustykki. Hálslíning er tvöföld þó hægt sé að hafa hana einfalda ef þess er fremur óskað.
Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi.
Notaðir eru tveir litir sem fá að njóta sín í einföldu mynstri á bolnum. Þetta er hlý og notaleg peysa með fallegum smáatriðum og er tilvalin fyrir litlar ævintýramanneskjur, hvort sem er í hversdagslegum leik eða á sparilegum stundum.
Í tvílitu mynsturprjóni er mikilvægt að ákveða hvor liturinn á að vera ríkjandi og hvor á að vera víkjandi, og halda böndunum alltaf eins yfir fingurinn. Ríkjandi litur liggur nær þér (innar á fingrinum) en víkjandi er fjær (framar á fingrinum).
Í peysunni á myndinni var ég með hvíta litinn sem ríkjandi lit.
STÆRÐIR
6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8 ára
UMMÁL BOLS
56 / 58 / 60 / 62 / 64 / 67 / 69 / 71 / 72 cm
GARN
Cashmerini frá Gabo Wool (50 gr= 115 mtr). Fæst hjá vetrargarn.is
Litur A: 100, 150, 150, 150, 200, 200, 200, 250, 250 gr (rauður á mynd)
Litur B: 50, 50, 100, 100, 100, 100, 100, 150, 150 gr (grár á mynd)
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Hjálparband eða nælur
Skæri, nál

