Tímamót barnapeysa
Tímamót barnapeysa
Tímamót barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, Tímamót barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, Tímamót barnapeysa
  • Load image into Gallery viewer, Tímamót barnapeysa

Tímamót barnapeysa

Verð
1.050 kr
Útsöluverð
1.050 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Peysan er prjónuð í hring ofan frá og niður með útaukningum í laska. Berustykki er prjónað með lit A og eftir að stykkinu hefur verið skipt upp er skipt yfir í lit B. Rendur eru prjónaðar á bol og ermum með lit A.

Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi.

STÆRÐIR

3-6 mán / 6-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 7 ára / 8 ára / 10-12 ára

UMMÁL BOLS
50 / 55 / 59 / 61 / 63 / 65 / 66 / 69 / 71 / 73 / 76 cm

GARN
Lana Gatto Merinocot (50 gr= 125 mtr) eða Lana Gatto Supersoft. Fæst hjá garnoggjafir.is
LITUR A: 100, 100, 100, 100, 100, 100, 150, 150, 150, 150, 150 gr
LITUR B: 100,
100, 100, 100, 150, 200, 200, 250, 250, 300, 300 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Hjálparband eða nælur
Skæri, nál