Vinkonu bleiubuxur
Vinkonu bleiubuxur
Vinkonu bleiubuxur
Vinkonu bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonu bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonu bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonu bleiubuxur
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonu bleiubuxur

Vinkonu bleiubuxur

Verð
790 kr
Útsöluverð
790 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessar buxur eru með einföldu og fallegu mynstri yfir mittið, eins og aðrar uppskriftir í Vinkonu-línunni og passa sérlega vel með þeim öllum.
Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður með mynstri efst við mitti og stuttum umferðum á baki til að pláss sé fyrir bleiurassinn. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og að lokum er lykkjað saman í klofi.

Skoðaðu aðrar uppskriftir í þessari línu, og notaðu afsláttarkóðann VINKONA til að fá 10% afslátt ef þú kaupir 3 eða fleiri

STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 12-18 mán

UMMÁL 
34 / 39 / 43 / 49 / 52

GARN
Sandnes Lanett, Rauma Babygarn (fæst hjá Ömmu mús), eða annað sem passar prjónafestunni.
50, 50, 50, 100, 100 gr. 

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm nr. 2,5 og 3,0
Sokkaprjónar nr. 2,5 og 3,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
27 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Skæri, nál