Vinkonugalli
Vinkonugalli
Vinkonugalli
Vinkonugalli
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonugalli
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonugalli
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonugalli
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonugalli

Vinkonugalli

Verð
1.300 kr
Útsöluverð
1.300 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Þessi galli er með sama fallega mynstrinu og aðrar uppskriftir í Vinkonulínunni.

Gallinn er prjónaður ofan frá og niður með útaukningum á berusykki, fram og til baka þar til kemur að klofstykki en þá er tengt í hring. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og ermar einnig. Í lokin eru teknar upp lykkjur í kantinum til að gera tölulista og hann svo festur niður að neðanverðu.

Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef þú notar aðra tegund þá gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, en einnig ef þín prjónfesta er önnur.

Skoðaðu aðrar uppskriftir í þessari línu, og notaðu afsláttarkóðann VINKONA til að fá 10% afslátt ef þú kaupir 3 eða fleiri

STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 1-2 ára / 2-3 ára

UMMÁL
48 / 52 / 55 / 56 / 60 / 62 cm

GARN
Woolly (fæst hjá frostknit.is) eða annað sem passar prjónafestunni.
200, 200, 250, 250, 300, 350 gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónn 40 eða 60 cm, # 3,5 og 4,0 
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
6-8 tölur
Hjálparband eða næla
Skæri, nál