Vinkonukjóll
Vinkonukjóll
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonukjóll
  • Load image into Gallery viewer, Vinkonukjóll

Vinkonukjóll

Verð
1.250 kr
Útsöluverð
1.250 kr
Verð
Uppselt
Einingaverð
per 

Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður með útaukningum í berustykki. Hálslíning er tvöföld þó hægt sé að hafa hana einfalda ef þess er fremur óskað.
Útaukningar eru gerðar nokkuð þétt í pilsinu til að fá góða vídd í það auk þess sem mynsturrendur eru prjónaðar þar með jöfnu millibili.
Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi.

Skoðaðu aðrar uppskriftir í þessari línu, og notaðu afsláttarkóðann VINKONA til að fá 10% afslátt ef þú kaupir 3 eða fleiri

STÆRÐIR
Nýburar, 0-3 mán, 3-6 mán, 6-9 mán, 9-12 mán, 1 árs, 2 ára, 3 ára

UMMÁL
47, 50, 54, 57, 59, 61, 64, 67 cm

HEILDARLENGD
32, 34, 36, 38, 45, 46, 50, 53 cm

SÍDD Á PILSI
21, 24, 24, 26, 33, 34, 36, 38 cm

GARN
Trend Merino Petite frá Viking garn (fæst hjá Bobbýjardætrum, bobby.is) eða það garn sem passar prjónafestunni.
100, 150, 150, 150, 200, 200, 250, 250  gr

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónn 40 cm (einnig 60 cm ef vill), nr. 2,5 og 3,0
Sokkaprjónar nr. 2,5 og 3,0

Sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf.

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU  PRJÓNI
28 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða næla
Skæri, nál