Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningum í berustykki. Hálslíning er tvöföld þó hægt sé að hafa hana einfalda ef þess er fremur óskað.
Mynstrið er prjónað niður allan bolinn og ermarnar, en ef vill þá er ekki síður fallegt að hafa bol og ermar sléttar og prjóna mynstrið eingöngu í berustykkinu.
Ermalykkjur eru geymdar á meðan bolur er prjónaður og þær svo prjónaðar hvor í sínu lagi
Skoðaðu aðrar uppskriftir í þessari línu, og notaðu afsláttarkóðann VINKONA til að fá 10% afslátt ef þú kaupir 3 eða fleiri
STÆRÐIR
6-9 mán / 9-12 mán / 1 árs / 2 ára / 3 ára / 4 ára / 5 ára / 6 ára / 8 ára
UMMÁL
49 / 55 / 60 / 64 / 67 / 67 / 73 / 75 76 cm
GARN
Woolly (fæst hjá frosknit.is) eða annað sem passar prjónafestunni.
150, 200, 200, 200, 250, 250, 300, 350, 350 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónn 40-60 cm, # 3,5 og 4,0
Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
Hjálparband eða næla
Skæri, nál